:) Stærðin skiptir máli ;)
Gassar
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
26.12.2006 02:17:03 / gunstein

GLEÐILEG JÓL

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Hef það bara fínt.
Þannig lagað séð :S
Alltof mikið át :(
Alltof mikið meinlæti ;)
Æi, já þetta er bara svona.
Við mætum tvíefldar til leiks eftir áramótin.
Það er sko eitt sem er víst er..............eins og einhver sagði.
Hafið það gott yndislegar.
knús

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 10:32:14 / gunstein

Lifandi

Hæ dúlls !
Ég er ekki horfin, ef einhverjum hefur dottið það í hug.
Hvorki af sjónarsviðinu né umfanginu.
Búið að ganga á ýmsu, bæði í sambandinu okkar Ívars og öðru í lífinu.
Ekkert alvarlegt þó ;)
Ég er ekkert búin að sparka Ívari þrátt fyrir að vegasaltið sé á dálítilli ferð stundum.
Fékk magapest dauðans og hélt í rúmlega tvo sólarhringa að sá ljóti kæmi til með að hafa betur, en ég er öll að koma til og matlystin er líka að koma til baka.
Það stendur ekki á því að hún skilar sér fljótt í hús ;)
Nú er runninn upp síðasti vinnudagur fyrir jól og ætla ég að reyna að eiga smá frí milli jóla og nýárs, þótt ég sjái það fyrir að geta ekki verið alveg í fríi.
Svona fer það stundum þegar verst stendur á.
Vona að þið hafið það allar sem allra best, séuð hressar, kátar og helst ástfangnar :$
Knúsíkrús


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 13:32:01 / gunstein

Sprettur

Hæ.
Það er svolítill sprettur á minni þessa vikuna. Margt sem þarf að klárast og skilast fyrir vikulokin og ég rembist við að standast tímamörk.
Lofa að fara góðan bloggrúnt um helgina.
Ætla sko að dúllast bara þá.
Njóta þess að gera bara það sem mig langar til að gera, þegar mig langar til..................
Heyrumst betur þá.
Knús fyrir þennan dag ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 08:47:17 / gunstein

150 steinlágu ;)

Daginn.
Laufabrauðið tilbúið, jólin mega næstum bara koma ;)
Vorum saman þrjú "míni" heimili og gerðum 150 kökur.
Já,já, þetta er mikið fyrir fáa, en þetta er nú einu sinni stór hluti jólanna og má ekki verða skortur á.
Svo er bara fínt að eiga smávegis eftir þegar þorrinn kemur og svona ;)
Ívar fór  af bæ í gær þegar laufabrauðsgerðin hófst.
Það fylgja ýmsar hefðir laufabrauðsgerð og ein þeirra er nammi.
Ívar er ekki hrifinn af slíku og fór bara annað á meðan.
Ókídókí, við náðum saman strax og ég kláraði.
Njótum dagsins í dag, brosandi og sætar :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 08:59:54 / gunstein

Hægferð

Hæ dúlls.
Ég veit alveg hvar gírinn er, en af og til þá hrekkur hann úr stað, og stundum svona ískrar í öllu, en ég finn hann alltaf aftur og þá verður hann Ívar minn svo sæll með mig og við svo ástfangin og líður svo vel.
Þess vegna skilur hann ekki þessa áráttu mína að vera veik fyrir því að líta svona útundan mér :cry:
Hann er í raun og veru afbrýðissamur og ég skil það alveg, en er samt stundum svo veiklunduð að ég gleymi því.
En við erum að setja okkur í jólagírinn.
Laufabrauðsgerð framundan.
Það er svo gaman ;)
Brosum í dag :lol:

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 08:39:39 / gunstein

Óvænt helgi ?

Hæ.
Já helgin hjá mér var óneitanlega öðruvísi en maður skyldi ætla að kelling á miðjum aldri hefðist að í miðju jólastressinu.
Fór til Reykjavíkur og mætti í útskrift bróður míns, án þess að hann hefði hugmynd um að ég ætlaði að mæta.
Tókst að koma verulega á óvart :)
Nýtti svo tímann til að kaupa örfáar jólagjafir og fara um bæinn.
Sorry, en ég bara get ekki hugsað í allri þessari mannmergð. Allir rekast utan í alla og æi, nei, ekki fyrir mig.
Eyddi löngum tíma í frábærri búð í Síðumúla, sem örugglega fáir fara í, enda fékk ég alveg frið þar.
Ívar var ekki með. Gleymdi honum heima, en þetta var samt ekki svo slæmt, þannig lagað séð.
Eigið dásamlega vinnuviku ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 09:44:06 / gunstein

Lætur hafa sig að .....?

Hæ.
Já, ýmislegt hef ég nú tekið mér gyrir hendur og ekki allt úthugsað, en núna held ég að ég hafi toppað sjálfa mig.
Ég tók þátt í tískusýningu í gærkvöldi :$
Já, dúlls..................sýndi föt á sýningu :S
Troðfull búð af fólki að horfa á og ég sprangaði um eins og :$ og lét horfa á mig í gallabuxum og rauðum háhæluðum skóm, meira að segja.
Pæliði í þessu ! Það hefði þurft að segja mér þetta hér í denn ;)
Það var frekar í lagi með víðu buxurnar og pilsin og það dót allt, en já nú veit ég að þið alveg liggið í krampa úr hlátri.
Það er allt í þessu fína, mér þykir alltaf gaman að skemmta fólki.
Eigið yndislega helgi essguddnar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 09:39:50 / gunstein

Mjakast

Hæ.
Ívar er allur að koma til.
Sjúkkett, hvað ég er fegin. ;)
Vorum bara í ágætis málum í gær og til stendur að eiga góðan dag í dag líka.
Óskum ykkur þess sama.
knúsíkrús


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 08:17:26 / gunstein

Fínt í gær

Daginn.
Ívar mildaðist aðeins í gær, þegar hann sá að ég stóð mig eins og manneskja í gær.
Hann er samt ekkert að kjassa mig neitt svona strax.
Greinilega ekki alltof öruggur með þessa hrasandi kellingu sem endalaust er að veita sætabrauðsdrengjunum athygli og áhuga.
Honum finnst þetta alls ekkert skemmtilegt, en segist ekki fara frá mér.
Það sé ekki í myndinni.
Ég skuli bara standa mig.
Og hananú ;)
Eigið góðan og blessaðan...............


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 08:42:23 / gunstein

Sukk

Góðan dag.
Það verður ekki neinn sálmasöngur sem hér verður færður til bókar, nei :evil:
Það var afmælisveisla í gær, sem ég fór í.................já, halló bara :cry:
Annars bara allt í gúddí, er það ekki?
Ívar var sko EKKI með í afmælinu, hann er í fýlu í dag og ég er nú þegar byrjuð að sleikja hann upp :(
Melóna og hrökkbrauð, það hlýtur að freista hans, þessarar elsku ;)
Ég kem til með að leggja mig alla fram við að fá gott verður á ný..........hann er nú einu sinni "beib"
Ein í fallbaráttu :(:(:(

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 09:45:53 / gunstein

Mánudagur

Hæ.
Erilsamri helgi lokið, maður mætir bara lúinn til vinnu í dag.
Mikið stúss í leikfélaginu og garrdínusaumur þegar heim var komið.
Ekkert djamm eða sukk. Gleymdi meira að segja kvöldmatnum í gærkvöldi.
Fátt sem sjaldan skeður :D
Ívar var með mér alla helgina, bara þokkalegur, takk fyrir ;)
Baráttukveðjur fyrir nýbyrjaða VIKU.
Knúsíkrús


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 09:10:38 / gunstein

Helgi

Hæ, hæ...............
Helgi framundan og ég er svo fegin að það hálfa væri nóg.
Vikan einkennst af þeytingi og einhverjum tætingi frá upphafi til enda.
Ég var fljót að jafna mig á Vigtoríu, enda er ég þess fullviss að um mun er að ræða á milli suður og norðurlandsins. Loftið er alveg örugglega þyngra hér fyrir norðan heheeee ;)
Það var líka merkilegt þegar ég fyrst fór í Garðabæinn að þá allt í einu voru 2 kg niður. Ég hef aldrei lést svona mikið milli vigtana. Ég hef allan tímann silast þetta á hraða snigilsins og verið bara ánægð með það..........í stórum dráttum ;)
Svo þegar upp er staðið þá set ég upp einfalt reikningsdæmi fyrir þennan tíma.
Tvö kíló mínus, aftur 200 grömm mínus og svo 500 grömm upp = 1.7 kíló niður.
Og ég er bara verulega sátt með það.
Hví þá að skæla ?????
Góða helgi allar yndislegar.:P:P:P

» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan