|
|
13.04.2007 10:36:31 / gunstein
Þið allar duglegu, yndislegu dúllur.
Ég er á lífi, meira að segja með ágæta heilsu, þannig lagað
séð.
það sem að er, er stjórnleysi, hömluleysi og vitleysa,
endalaus.
Eftir að ég loksins náði mér af flensunni, hefur ekkert gengið hjá
okkur Ívari.
Það er að segja að púkaskrattar og fól hafa algjörlega haft völdin
í mínu lífi, með tilheyrandi óhollustu og sukki.
Þið ættuð að heyra ógeðslega hláturinn í Vigtoríu, já, já það
hlakkar í henni helvískri, enda hefur hún efni á því.
það er ég sem er sem sagt í vondum málum og veit svo vel innst inni
að ég vil ekki hafa þetta svona. Mig vantar bara eitthvað sem ég
höndla ekki alveg, til að komast aftur í þann eina sanna gír.
Ég bið ekki um skilning, það er ekki hægt.
Ég sjálf, ein og óstudd, verð að gjöra svo vel og finna leiðina og
fylgja henni.
Mér er það barasta nauðsyn.
Segi ykkur ekki hvað ég hef b ætt á mig.
Það er hræðilegt.
Heyrumst.
»
16.03.2007 10:13:28 / gunstein
Hæ dúlls.
Ég skal hafa þetta.
Stundum er þetta bara ekkert mál og svo hrynja örfáir
smásteinar............
En sannleikurinn óumbreytanlegi er auðvitað sá að konan er ferlega
veik á svellinu.
Það er svona álíka staðreynd og að 2x2=4
Veikleiki og kannski einhver segi.............sjúkleiki.
Ég fer samt ekki ofan af því að það er ekki bara óhóf og græðgi sem
gerir fólk feitt.
Þegar ég kemst á almennilegt skrið á ný, já ég segi þegar, því ég
mun komast aftur í góðan gír, þá endurskoða ég öll mín markmið og
geri þetta að fræðilega yfirstíganlegum hólum.
Mér hættir til að halda að ég bara stökkvi yfir hæstu fjöll. En það
er kominn tími til að læra það að tími kraftaverkanna er
liðinn..............
...........eða er það ekki?
»
14.03.2007 08:31:23 / gunstein
Góðan og blessaðan.
Í gær var bara nokkuð góður dagur hollustulega séð, en alls ekki
danskur.
Mér næstum því býður við grænmetinu þessa síðustu og verstu
tíma.
Ja, nema bara í litlum hóflegum skömmtum................
Er svo ósátt að ég bara set mér það fyrir að koma hingað og gera
grein fyrir mínum málum.
Bið þess heitt og innilega að ég fái í það minnsta danskan hreim
fljótlega.
Við þetta verður ekki unað.
Óska ykkur alls hins besta í dag............

»
13.03.2007 08:29:32 / gunstein
Góðan dag.
Já, það er ekkert auðvelt beint, að viðurkenna það að manni takist
ekki að halda utan um Ívar eins og hann á skilið, þegar ekkert
aðhald er.
Eftir áramótin tókst ekki að fá á fullt námskeið, til að ráðgjafi
kæmi til okkar hér á Húsavík.
Ég greinilega þoli ekki frjálsræðið betur en þetta.
Held mér ekki við hann elsku Ívar, þrátt fyrir að ég viti
nákvæmlega hvað mér er fyrir bestu og Ívar búinn að sýna mér
þvílíka þolinmæði og hollustu.
Það væru margir sætabrauðsdrengirinir búnir að sparka manni útí
hafsauga, en ekki Ívar, og samt er ég þessi trunta við hann.
Já, ég skammast mín fyrir framkomuna við hann og er ekki stolt af
þessu.
Svo ég tali nú ekki um hversu óánægð ég er vegna
ístöðuleysisins.
Fussumsvei.
Ætla að reyna að tala mig í ham.............
Eigið góðan dag dúlls
»
12.03.2007 08:46:00 / gunstein
Hæ elskurnar !
Ekkert blogg, ekki hvísl, ekki hósi né stuna.
Hvað þýðir það?
Jú, ekki nema eitt og aðeins eitt.
Ég er ekki að standa mig neitt, alls ekki neitt 
Ég er ekkert stolt af því, alls ekki............
Nú er bara að endurskoða stöðuna...........
Hvað ætlar konan að gera í málinu?
Gefast upp..................nei það má ekki.
Hvað þá???
»
05.03.2007 11:37:32 / gunstein
»
01.03.2007 13:24:48 / gunstein
»
26.02.2007 13:27:06 / gunstein
Hæ essguddnar.
Ég ræflast þetta í vinnunni og er svo alveg sprungin eftir
vinnudaginn.
Mér gengur afar hægt að ná orkunni upp eftir veikindin.
Er samt að reyna að digga við Ívar og það gengur alltaf betur og
betur eftir því sem ég hressist meira.
Þetta bara SKAL koma.
Skrifa meira seinna.
Knús í krús
»
16.02.2007 20:50:21 / gunstein
»
14.02.2007 10:24:03 / gunstein
Hæ, hæ.
Fínni ferð til Kaupmannahafnar lokið. Dálítið sérstakt að vera
svona einn á ferð.
Var ekki fyrr komin heim en kvef og lasleiki herjar á mig.
Er heima og vorkenni sjálfri mér frekar mikið.
Við Ívar erum að reyna að ná saman aftur, verð að viðurkenna að það
gengur alla vega.
Finn samt inn í hjarta mínu að þetta verður að takast hjá okkur,
mér er það beinlínis nauðsyn.
Svo nú er bara að flýta sér að ná heilsu og biðja svo
hjartaknúsarann hann Ívar um gott veður.
Hann er eins og þið vitið dásamlega þolinmóður og frábær í alla
staði.
Maður má bara ekki missa lystina á honum hmmmmmmmmmmm 
Heyrumst dúllur
»
02.02.2007 22:59:10 / gunstein
Hæ .......ég er hér............á leið til Köben 
Er í Reykjavík og flyg í fyrramálið. 
Ætli ritstíflan hér helgist ekki pínu pons af góðri
matarlyst........
Já þetta er bara ekki hægt.
Ég er að lofa Ívari elsku að taka mig saman í andlitinu þegar ég
kem heim aftur.
Ein vika og svo...........................
Ég verð, get og skal.....................
Heyrumst þá mínar yndislegu og dyggu.
Eigið góða viku stundir...............
»
26.01.2007 10:32:39 / gunstein
Hæ yndisfríðar !
Ein hér MJÖG fegin því að það er að koma helgi.
Stefni á það að hvílast og safna orku...............finna út
einhverjar pottþéttar afstressunarleið til að nýta í botn þessa
helgi.
Það er bara staðreynd í mínu húsi að halda utan um mataræðið gengur
svo miklu betur þegar hugurinn er ekki á fleygiferð í stressi og
vitleysu.
Markmiðið er sem sagt bara eitt og nú er bara að standa við
það.
Enda er það raunhæft og leysanlegt og skal takast.
Eigið yndirlag helgi dúllurnar mínar
 
»
25.01.2007 11:32:38 / gunstein
»
24.01.2007 18:52:27 / gunstein
»
15.01.2007 09:43:43 / gunstein
Daginn, daginn !
Allt fínt að frétta. Gengur bara fínt og allir sáttir og sælir.
Náði að slappa verulega af um helgina. Bara verst hvað hún var
fljót að líða.
Svo er bara allt að fara á kaf í snjó núna. Veturinn hefur ekki
sleppt takinu, enda kannski full fljótt að óska þess.
Ívar biður að heilsa ykkur.
Eigið yndislegan dag................
knús
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|
|